
Um Héraðs- og Austurlandsskóga
Héraðs- og Austurlandsskógar eru stjórnunar og skipulagningaraðili við uppbyggingu skógræktar á Austurlandi sem sjálfstæðrar atvinnugreinar meðal bænda. Rækta skal fjölnytjaskóga með mismunandi trjátegundum og viðarframleiðslu að markmiði en möguleika til fleiri nytja og hvarvetna til landbóta.
Meginmarkmið Héraðs- og Austurlandsskóga með ræktun nytjaskóga er að stuðla að þróun og viðhaldi byggðar á starfsvæði sínu. Þannig eru verkefnin hvortveggja í senn byggða- og skógræktarverkefni. Skógana skal rækta í landi bænda og annarra landeigenda á svæðinu og skulu þeir vera í umsjón landeigenda og tekjugjafi þeirra til framtíðar. Stefna verkefnanna er að færa alla verkþætti við skógrækt út í sveitirnar.
Samkvæmt 1.gr. laga nr. 32/1991 um Héraðsskóga og 1. gr. laga nr. 56/1999 um Austurlandsskóga er verkefnunum falið að sjá um gróðursetningu nýrra skóga, grisjun og umhirðu skóga og stuðla með því að uppbyggingu samfélagsins á Austurlandi. Þá er markmið Héraðsskóga að gróðursetja í samstarfi við bændur um 15.000 ha. lands og hjá Austurlandsskógum er stefnt að gróðursettningu á um 5% af láglendi á þeim 40 árum sem áætlun hvors verkefnis nær yfir.







