Print

Hverjir geta tekið þátt

Untitled document Allir þeir sem hafa lögbýli á svæði Héraðs- og Austurlandsskóga til umráða geta tekið þátt í verkefninu. Lágmarksstærð lands miðast við 20 ha samfellt svæði. Markmiðið er að sem flestir geti tekið þátt í verkefninu. Héraðs - og Austurlandsskógar er byggðaverkefni og því eru notaðar forgangsröðunarreglur við inntöku jarða í verkefnið, ábúendur á lögbýlum ganga fyrir þeim sem ekki búa á sínum jörðum.
Svæði Héraðs – og Austurlandsskóga nær yfir allt láglendi Múlasýslna.

Lögbýli merkir jörð sem hefur þann húsakost og það landrými eða aðstöðu að unnt sé að stunda þar landbúnað eða aðra atvinnustarfsemi og var skráð í jarðaskrá landbúnaðarráðuneytisins 1. desember 2003 (Jarðalög, 2.gr.) Lögbýli teljast enn fremur jarðir sem hljóta síðar viðurkenningu landbúnaðarráðuneytisins sem ný lögbýli, sbr. 16.–22. gr. jarðalaga.

Nýjustu fréttir

Vinsælustu fréttirnar

Góða veðrið

sol.jpgVeður á Austurlandi