Yfirlit verkefna

Print

Yfirlit verkefna

Grænsíða
Héraðsskógar hafa í samstarfi við Tölvusmiðjuna á Egilsstöðum unnið að hönnun landfræðilegs gagnagrunns í skógrækt fyrir hönd fagstofnanna og félagasamtaka í skógrækt á Íslandi. Verkefnið, sem ber vinnuheitið Grænsíða, er styrkt af Alþingi og Rannís. Markmiðið með vinnunni er að til verði öflugur gagnagrunnur þar sem allar skógræktarframkvæmdir eru skráðar á landsvísu og verður grunnurinn sem slíkur sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum. Þá verður til mjög öflugt rannsóknartól fyrir margskonar rannsóknir tengdar skógrækt auk þess sem aðgangur og þjónusta við skógareigendur og almenning er aukin til muna.

Þátttökuaðilar verkefnisins eru:
Landshlutabundnu skógræktarverkefnin
Skógrækt ríkisins
Landssamtök skógareigenda
Skógræktarfélag Íslands

Verkefninu er stýrt af Héraðsskógum og unnið af Tölvusmiðjunni.

Verkefnið hefur verið í vinnslu síðan 2002 og eru áætluð verklok í byrjun árs 2007.

Northern Woodheat
Á vormánuðum var undirritaður samningur um metnaðarfullt rannsókarverkefni undir yfirskirfitinni Northern Woodheat en Héraðsskógar eru stjórnunaraðilar þess verkefnis á Íslandi.

Um er að ræða samstarf þriggja landa, Íslands, Skotlands og Finnlands. Á Íslandi taka Skógrækt ríkisins og Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri auk Héraðsskóga þátt í verkefninu. Verkefnið snýr að því að kortleggja og greina auðlindir skóganna á Héraði með tilliti til mögulegra notkunar þeirra við upphitun húsa og þá hvort og hvernig þær geti verið raunhæfur valmöguleiki á köldum svæðum.

Verkefnið er styrkt af NPP, Northern Periphery Programme, og auk þess styrkja Orkustofnun, Byggðastofnun og Framkvæmdasjóður bænda íslenska hluta verkefnisins.

Verkefnið stendur í þrjú ár eða fram til ársins 2007.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu þess: http://www.northernwoodheat.net/


Viðarnytjar
Framkvæmdastjóri Héraðsskóga var valin sem fulltrúi Landshlutabundnu skógræktarverkefnanna í vinnu viðarnýtingarnefndar sem er samstarfsverkefni Skógræktar ríkisins og Byko um viðarnytjar úr íslenskum nytjaskógum. Verkefni nefndarinnar er að leita leiða til verðmætasköpunar með því að nytja efni sem fellur til við fyrstu grisjun ungskóga.

Verkefnið er til eins árs í senn og er fjármagnað af BYKO, Skógræktinni og öðrum þátttökuaðilum.

Þá hafa Héraðsskógar verið með í undirbúningi að rannsókn/könnun á möguleikum svæðisins til að framleiða og selja svokallaðar óhefðbundnar skógarnytjar eins og sveppi, ber, ensím o.s.frv. Undirbúningur að verkefninu hefur verið unninn í samtarfi við Félag skógarbænda á Héraði og var vinnuhópur skipaður 2005 sem heldur utan um verkefnið.

Nýjustu fréttir

Vinsælustu fréttirnar

Góða veðrið

sol.jpgVeður á Austurlandi