Print

VIDEO af fagráðstefnu Hallormsstað

Vel heppnuð fagráðstefna í skógrækt var á Hallormsstað í vikunni. Fyrirlestrana verður hægt að nálgast á heimasíðu skógræktar ríkisins áður en langt um líður. Á Youtube aðgangi HASK er að finna nokkur áhugaverð video, meðal annars þau sem voru sýnd á fagráðstefnunni í fyrirlestrum Sherryar og Hlyns um reynslu af umhirðu á Hérað að undanförnu.

Hér er að finna þau myndbrot sem nú þegar eru á Youtube-HASK

Fagráðstefna2013 Umhirða

Fagráðstefna2013 Námsk 2012

Fagráðstefna2013 Tímataka

Lerkijólatrétilraun 2009

Landsmót verkefnanna 2008

Eiðahólmi

Skógarhöggsvél í Skorradal des 2009

Skógarbændafundur 2013 Hlynur

Skógarbændafundur 2013 Sherry

Skógarbændafundur 2013 Ólöf

Skógarbændafundur 2013 Þröstur

Print

Grisjunarútboð-opnað

Útboð í grisjun á Víðivöllum Ytri 2 var á hádegi í dag. Þrjú tilboð bárust og eitt frávikstilboð. Tekið var tilboði Jóns Þórs Þorvarðarsonar, Sigurðar Max Jónssonar og Lárusar Heiðarssonar.

Print

Litli grisjarinn

skudagur-litil grisjarinn Frimar Gsli Helgason Bragsonar 20022013E

Það þykir kannski ekki frásögu færandi að krakkar í búningum kíktu við á skrifstofuna í Miðvangi á öskudaginn. Einn búningurinn vakti þó töluverða athygli og ánægju meðal starfsmanna skógargeirans. Það var á ferð ungur skógarbóndi á Setbergi, Friðmar Gísli, mættur í fullum herklæðum, en hann var þó reyndar ekki kominn til að ræða grisjunarútboð heldur langaði hann bara að syngja fallega skógarsöngva.

Print

ÚTBOÐ

Grisjunarútboð

Héraðs- og Austurlandsskógar, fyrir hönd landeigenda, óska eftir tilboði í grisjun á lerkiskógi á Víðivöllum ytri 2 í Fljótsdal. Um er að ræða fjölbreytt og sundurslitið svæði, samtals 6 ha að flatarmáli. Þéttleiki er tæp 4000 tré/ha og meðaltré rúmir 5 m að hæð. Gera skal tilboð í svæðið í heild fyrir 7. mars 2013, kl 12:00. Verki skal lokið 15. maí 2013

 

Nánari upplýsingar

This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.   eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.   sími 471 2184

Nýjustu fréttir

Vinsælustu fréttirnar

Góða veðrið

sol.jpgVeður á Austurlandi