Print

Áætlanir og gagnavinnsla

Starfsmenn Héraðs- og Austurlandsskóga fara með stafræna loftmynd á umsamið landsvæði teikna inn á nákvæma reitaskiptingu svæðisins eftir mismunandi gróðurþekju, gróðurlendi, jarðvegsdýpt og fleiru. Metið er hvar er þörf á jarðvinnslu, hvaða trjátegundir henta, hversu margar plöntur fara í hvern reit auk ýmissa fleiri atriða.

Könnun á náttúru- og söguminjum á fyrirhuguðu gróðursetningarsvæði er einnig mikilvægur þáttur í áætlanagerðinni. Á grundvelli hennar eru gerðar tillögur um hvernig haga eigi gróðursetningu til að minjar og landslag verði ekki fyrir röskun vegna skógræktar.

Eftir að þessi vinna hefur farið fram er svæðið teiknað inn í tölvu og fengnar upplýsingar um landið færðar inn í gagnagrunn og inn á kort. Síðan er unnin ræktunaráætlun og hún prentuð, bæði á myndrænan og tölulegan hátt. Þannig er gerð skógarins og útlit hans hannað fyrirfram. Framkvæmdir eru svo hafnar á svæðinu eftir þessari áætlun.

Nýjustu fréttir

Vinsælustu fréttirnar

Góða veðrið

sol.jpgVeður á Austurlandi