
Framkvæmdir
Héraðs- og Austurlandsskógar sjá um skipulag og eftirilit með framkvæmdum og veita einnig ráðgjöf til framkvæmdaaðila sem eru landeigendur.
Verkferlið er í raun fjórþætt:
- Samningur gerður við landeiganda um land sem tekið er til skógræktar. Við val á skógræktarsvæði er tekið er tillit til landnýtingar jarðarinnar í heild, skógræktarskilyrða sem og umhverfis-, náttúru- og fornleifaverndar.
- Eftir að samningur um skógrækt hefur náðst er gerð ítarleg skógræktaráætlun. Áætlanir eru unnar í náinni samvinnu við landeiganda og taka tillit til markmiða hans og væntinga með skógræktinni. Skógræktaráætlun er gerð til 10 ára og tekur tillit til friðunnar, jarðvinnslu, gróðursettningu og plöntuvals.
- Skógræktarframkvæmdir hefjast þegar búið er að friða samningssvæðið fyrir ágangi búfjár. Fagleg umsjón og eftirlit er í höndum verkefnisins en landeigandi eða verktakar á hans vegum sjá um allar framkvæmdir.
- Verkefnið hefur síðan umsjón með umhirðu og fyrstu grisjun nýrri og eldri skóga á starfsvæðum sínum, sérstaklega þess skóglendis sem var innan svokallaðrar Fljótsdalsáætlunar áður. Við þessi verk sem og önnur er vinnan unnin af skógarbændum en verkefnið hefur yfir umsjón og eftirlit með framkvæmdinni.







