
Articles
Skógardagurinn mikli
Skógardagurinn mikli verður haldinn í Mörkinni Hallormsstað laugardaginn 23. júní nk. Veðurspámenn lofa dýrindis veðri, en veðrið hefur aldrei klikkað á skógardaginn. Mikið verður um að vera á skógardaginn og hápunkturinn þegar nýr Íslandsmeistari í skógarhöggi verður verðlaunaður. Á föstudagskvöldinu taka sauðfjárbændur forskot á skógardaginn og bjóða upp á grillað lambakjöt undir harmonikkutónum og fleira húllumhæi í Mörkinni.







