
Framkvæmdastjóri
Framkvæmdastjóri
Stjórn Héraðs- og Austurlandsskóga óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra í fullt starf. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi til að sinna framsæknu og krefjandi starfi. Umsóknarfrestur er til 27. júní 2007. Krafa er gerð um að umsækjandi verði búsettur á starfssvæðinu. Starfssvið: - Dagleg stjórnun - Áætlanagerð og fjármál - Samskipti við Alþingi, ráðuneyti og stofnanir - Skipulagning og starfsmannamál - Almannatengsl Hæfniskröfur: - Háskólamenntun er æskileg - Hæfni til að hafa umsjón með rekstri og mannauðsstjórnun - Reynsla og/eða þekking á fjármálastjórn og samningagerð - Góðir samskiptahæfileikar - Gott vald á íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli Í umsókn skal eftirfarandi koma fram: - Ástæða umsóknar - Stutt æviágrip og fjölskylduhagir - Menntun - Starfsferilskrá (CV) - Umsagnaraðilar Umsóknum skal skilað á skrifstofu Héraðs- og Austurlandsskóga, Miðvangi 2 – 4, 700 Egilsstaðir. Umsóknina skal auðkenna "Umsókn um starf framkvæmdastjóra". Nánari upplýsingar gefur Guðmundur Ólafsson í síma: 471-2184. Hægt er að nálgast upplýsingar um starfsemi Héraðs- og Austurlandsskóga á heimasíðunni www.heradsskogar.is Miðvangi 2-4 . 700 Egilsstaðir . Sími 471 2184 . Fax 471 2172 .
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
.







