Print

Húsgagnagerð úr skógarefni

Ólöf Inga Sigurbjartsdóttir skrifaði þann .

img_0026

Námskeiðið „Húsgagnagerð úr skógarefni“ var haldið um helgina í húsnæði Skógræktar ríkisins á Hallormsstað. Það var Landbúnaðarháskóli Íslands sem stóð fyrir námskeiðinu en endurmenntunardeild skólans er öflug í því að kenna alls konar námskeið út um landið. Þátttaka í námskeiðinu var góð og m.a. sóttu það nokkrir skógarbændur af svæðinu. Má reikna með að þeir horfi nú á skóginn sinn með öðrum augum en hingað til og grisjunarefni verði framvegis vegið og metið með tilliti til þess hversu vel það hentar í stóla, bekki og borð. Ólafur Oddson fræðslufulltrúi Skógræktar ríkisins kenndi fólki réttu handtökin á námskeiðinu og honum til aðstoðar var Björgvin Eggertsson verkefnisstjóri Landbúnaðarháskólans. Um stórskemmtilegt námskeið er að ræða og hentar vel öllum sem aðgang hafa að skógi, kennurum og handverksfólki.

img_0028

Nýjustu fréttir

Vinsælustu fréttirnar

Góða veðrið

sol.jpgVeður á Austurlandi