Print

Mjöður drýpur af hverju strái

Freyja skrifaði þann .

Upp úr 1990 var farið í tilraunir á birkivínsframleiðslu á Héraði með tilheyrandi brambolti en nú hafa trén á Miðhúsum hafið eigin framleiðslu án utankomandi aðstoðar.  Ekki þarf lengur að tappa birkisafanum af þeim og bæta geri útí því gersveppirnir koma bara og setjast á trjástofnana um leið og birkisafinn streymir.  Eina áhaldið sem þarf að nota er rör til að sjúga. Það sannast enn og aftur að  skógarguðinn heldur með sínum og býr til vínið í trjánum hjá þeim sem á hann trúa! Amen.

gersveppur1a.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Það er fleira en birkitrén sem skarta sínu fegursta í garði formannsins því þar mátti einnig sjá Krileyjakirsuberjatré í blóma (Prunus nipponica).

kirsuberjatre1a.jpg

Nýjustu fréttir

Vinsælustu fréttirnar

Góða veðrið

sol.jpgVeður á Austurlandi