Print

Skógardagurinn mikli

Ólöf Inga Sigurbjartsdóttir skrifaði þann .

skogardagurinnSkógardagurinn mikli verður haldinn í Mörkinni Hallormsstað laugardaginn 23. júní nk. Veðurspámenn lofa dýrindis veðri, en veðrið hefur aldrei klikkað á skógardaginn. Mikið verður um að vera á skógardaginn og hápunkturinn þegar nýr Íslandsmeistari í skógarhöggi verður verðlaunaður. Á föstudagskvöldinu taka sauðfjárbændur forskot á skógardaginn og bjóða upp á grillað lambakjöt undir harmonikkutónum og fleira húllumhæi í Mörkinni.

Print

Vorið er komið

Ólöf Inga Sigurbjartsdóttir skrifaði þann .

Sherri Það er í ýmsu að snúast hjá starfsmönnum HASK þessa dagana. Gróðursetningar eru að komast á fullt skrið og fylgja þarf úthlutun eftir, færa á milli þar sem landeigendur geta ekki tekið við því sem þeim var úthlutað og svo frv. Þá eru starfsmenn farnir að kortleggja þar sem það á við og það þarf að taka út framkvæmdir og eitt og annað sem fylgir vorinu. Á meðfylgjandi myndum má sjá lítil brot úr starfinu.

Print

Nýr starfsmaður

Ólöf Inga Sigurbjartsdóttir skrifaði þann .

SævarSævar Hreiðarsson skógfræðingur hefur slegist í hóp starfsmanna Héraðs- og Austurlandsskóga og ætlar að vera með okkur fram á haustið. Hans aðalstarfi í sumar verða úttektir framkvæmda, kortlagning og almenn ráðgjafaþjónusta. Við bjóðum Sævar velkominn til starfa og vonum að hann eigi góða daga framundan hjá okkur hér á Austurlandi.

Print

Taxtar 2012

Ólöf Inga Sigurbjartsdóttir skrifaði þann .

Þrátt fyrir kuldatíð undanfarið eru framkvæmdir að komast á skrið hjá skógarbændum. Þeir hörðustu eru farnir að gróðursetja, aðrir eru á skipulagsstiginu. En allt lítur þetta vel út þrátt fyrir að við hefðum svo gjarnan viljað hafa fleiri plöntur til ráðstöfunar.

 Á fundi stjórnar sl. mánudag voru teknar ákvarðanir um breytingar á töxtum ársins 2012. Taxtana má finna hér á síðunni undir skjöl, taxtar og útsend bréf.

Print

Húsgagnagerð úr skógarefni

Ólöf Inga Sigurbjartsdóttir skrifaði þann .

Námskeið

Námskeiðið „Húsgagnagerð úr skógarefni“ var haldið um helgina í húsnæði Skógræktar ríkisins á Hallormsstað. Það var Landbúnaðarháskóli Íslands sem stóð fyrir námskeiðinu en endurmenntunardeild skólans er öflug í því að kenna alls konar námskeið út um landið. Þátttaka í námskeiðinu var góð og m.a. sóttu það nokkrir skógarbændur af svæðinu.

Nýjustu fréttir

Vinsælustu fréttirnar

Góða veðrið

sol.jpgVeður á Austurlandi