
Heimsókn ráðherra
Umhverfis og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir ásamt fylgdarliði heimsóttu nýverið Héraðs- og Austurlandsskóga. Eins og kunnugt er urðu þær breytingar á stjórnarráðinu þann 4. sept. sl. að landshlutaverkefnin í skógrækt voru flutt úr Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti yfir á forræði Umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Starfsfólk HASK ásamt Jóni Loftssyni skógræktarstjóra og starfsmönnum Skógræktar ríkisins tóku á móti ferðalöngunum.
Landsmót landshlutaverkefnanna
Dagana 28. og 29. ágúst sl. héldu Norðlendingar landsmót landshlutaverkefnanna. Var að þessu sinni farið í A.-Hún. og skógarbændur þar heimsóttir.
Námskeið framundan
Rétt er að benda skógarbændum og öðrum áhugasömum skógræktendum á námskeið í trjáfellingum og grisjun með keðjusög sem haldið verður á Hallormsstað í byrjun október.
Að auki stendur Landbúnaðarháskóli Íslands fyrir mörgum spennandi námsekiðum eins og sjá má á heimasíðu þeirra http://www.lbhi.is/pages/1710
Ársskýrsla - Sumarlokun
Út er komin ársskýrsla Héraðs- og Austurlandsskóga fyrir árið 2011. Hana má nálgast á vefnum undir slóðinni http://heradsskogar.is/skjol/cat_view/36-arsskyrslur.html
Skrifstofur Héraðs- og Austurlandsskóga verða lokaðar vegna sumarleyfa til og með 3. ágúst 2012.
Framkvæmdaskráning
Nú ættu flestir að vara búnir að gróðursetja og tilbúnir að skila inn framkvæmdaskýrslum.







